Innihald / pönnukökur (fyrir 2)
- 1 bolli speltmjöl (eða annað mjöl að eigin vali)
- ½ bolli Tiger Nut Drink
- 2 þroskaðir maukaðir bananar
- 2 egg
- 2 msk hunang
- 2 tsk lyftiduft
- 1 tsk vanilluduft eða extrakt
- ½ tsk kanill
- Kókosolía til að steikja
Innihald / eplamauk
- 2 epli
- Safi úr ½ sítrónu
- 1 tsk kanill
- 1 msk hlynsýróp (má vera meira, eða að smekk hvers og eins)
Aðferð - pönnukökur
- Maukið banana með gaffli í stórri skál, eða þar til þeir eru orðnir alveg að mjúkri blöndu. Bætið þá Tiger Nut mjólkinni samanvið.
- Bætið eggjum, vanillu og hunangi í blönduna og pískið samanvið.
- Setjið í aðra skál mjöl, lyftiduft og kanil og hrærið svo blönduðum þurrefnunum saman við hina blönduna.
- Hrærið öllu saman í deig.
- Hitið kókosolíu á pönnu, á miðlungs hita.
- Þegar pannan er orðin heit, bakið þá pönnukökurnar í rólegheitum, þar til þær eru orðnar gullinbrúnar.
- Berið fram með eplamauki, kókosmjöli og smá slettu af hunangi eða hlynsýrópi.
Aðferð - eplamauk
- Flysjið eplin og takið kjarnann úr. Skerið niður í teninga.
- Setjið epli, kanil, hlynsýróp og sítrónusafa í pott með smá slettu af sjóðheitu vatni.
- Sjóðið saman við miðlungs hita með lokið á og hrærið reglulega í.
- Bætið við meira vatni ef maukið virðist ætla að verða of þurrt