Hollar og dásamlega góðar vegan pönnukökur.
Skipulag er lykilinn að árangri þegar kemur að hollu mataræði. „Yfir-nótt“ hafragrautar eru ein af þessum frábæru lausnum sem spara tíma. Þeir eru líka hrikalega góðir og hægt að útfæra á ótal vegu. Þú getur útbúið svona hafragraut fyrir þrjá daga í senn og geymt í kæli og gripið svo með þér sem snöggan morgunmat eða léttan hádegismat.
Súkkulaði og heslihnetur er blanda sem klikkar ekki. Hér höfum við próteinríkt súkkulaðistykki sem gefur bæði orku og fyllingu sem endist. Góð blanda af kolvetnum, fitu OG próteini sem sér til þess að blóðsykurinn helst í jafnvægi og þú sleppur við sykursjokkið. Þessi uppskrift gerir um 10 meðalstór stykki. Snilld að eiga í frystinum.
Þessar eru dásamlegar! Stökkar að utan, mjúkar að innan og stútfullar af orku og næringu. Það má leika sér með álegg en þær virka jafn vel sem morgunmatur, bröns og eftirréttur. Ef þú átt ekki vöfflujárn er vel hægt að steikja þær sem pönnukökur. Þetta er lítil uppskrift, eiginlega bara fyrir einn svo þú getur margfaldað hana með fjölda þeirra munna sem þú ætlar að fæða.
Uppskrift að glútenlausum bolludagsbollum sem er fengin að láni frá Cafesigrun.com.