Urtasmiðjan silki-andlitsolía 30 ml.

Urtasmiðjan

Vörunúmer : 10083873

Þessi andlitsolía er algjör vítamínbomba, inniheldur m.a. mýkjandi þykkni úr blágresi og rauðsmára ásamt apríkósukjarnaolíu og  hinni dýrmætu arganolíu- Marokkogullinu  sem er álitin næringarríkasta olían sem þú getur gefið húðinni þinni.


6.999 kr
Fjöldi

Báðar þessar olíur eru ríkar af andoxunarefnum  og vítamínum sem næra og hafa endurnýjandi og yngjandi áhrif á húðina og eiga að gefa henni nýtt líf og ljómandi áferð. Silki-andlitsolían gengur fljótt og vel inn í húðina og skilur ekki eftir fituga áferð og má strax nota farða yfir hana. Setjið 2-3 pumpuskot í lófann og strjúkið mjúlklega yfir andlit og háls, daglega í 2 vikur, síðan 1-2 sinnum í viku, eða eftir þörfum. Húðin þarf ekki aðra næringu samtímis.

Setjið ca. 3 pumpuskot í lófann og stjúkið létt yfir andlit, háls og bringu. Endurtakið kvölds og/eða morgun í 2 vikur og síðan eftir þörfum. t.d. 1-2 í viku. Má líka nota stöðugt sem andlitskrem ef húðin er mjög þurr og vannærð.

eyw

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur