Tortilla vefjur frá Amaizin
- 1 dós nýrnabaunir frá Amaizin
- 400 g maískorn – lífræn
- 1 stk paprika, fínt skorin í lengjur (ekki bita)
- 1 stk skalottlaukur, fínt skorinn
- 1/2 stk fínt skorið chili
- 1 tsk kúmen
- smá mynta, fínt skorin
- sítrónusafi úr tveimur sítrónum
- salt og pipar
- handfylli af sólblómafræjum
Aðferð:
Setjið allt í skál nema sólblómafræin. Blandið vel saman og geymið í kæli í u.þ.b klukkutíma. Þurrristið sólblómafræin á pönnu. Blandið sólblómafræjum saman við salsa blönduna. Skiptið niður og setjið í sex tortilla vefjur. Berið svo fram með Amaizin basmati hrísgrjónum.