4 litlir eða 2 stærri skammtar
Eldunartími:15 mínútur
Innihald:
- 200 gr tómatar
- 300 gr rauð paprika
- 60 gr kókosmjólk
- Sjávarsalt eftir smekk
- Innihald úr 1 poka YOGI heartwarming te
Aðferð:
- Skerið tómata og papriku niður
- Setjið í pott með nægu vatni, þó ekki þannig að það fljóti yfir
- Setjið lok á pottinn og sjóðið í 8 mínútur
- Bætið við innihaldi tepokans og sjóðið áfram í 2 mínútur
- Slökkvið undir og bætið kókosmjólkinni við
- Maukið súpuna með töfrasprota eða í blandara og smakkið til með salti
- Gott að bera fram með fersku basil og svörtum pipar