Öll innihaldsefnin eru sett í botninn í matvinnsluvél og blönduð saman þar til orðin að deigi. Þrýstið deiginu í botninn á ca. 20 cm kökuformi.
Helmingnum af innihaldsefnum fyllingarinnar (sleppið þó matcha duftinu) eru sett í matvinnsluvélina og blandað saman þar til mjúkt. Lagt jafnt yfir botninn.
Restin af fyllingar hráefninu er sett í matvinnsluvélina og matcha duftið og mintan með. Blandað þar til mjúkt og bætt ofan á hin tvö lögin.
Kælt yfir nótt. Áður en borið er fram er fallegt að strá smá matcha dufti yfir og skreyta með ferskri mintu.