Pastaréttur með ólífum og sítrónuolíu

27 Oct 2017

Léttur pastaréttur fyrir alla fjölskylduna

Hráefni

  • 200 gr emmer spirelli skrúfur (Rapunzel) 
  • 300 gr kjúklingur 
  • 2 msk ólífuolía 
  • ½ stk eggaldin 
  • ½ stk rauð paprika 
  • 2 stk sellerístönglar 
  • 3 stk hvítlauksgeirar 
  • 1 krukka þistilhjörtu (Rapunzel) 
  • ½ krukka grænar ólífur (Rapunzel) 
  • 2 tsk paprikukrydd 
  • 4 msk sítónuolía (Rapunzel) 
  • Smá sjávarsalt

Leiðbeiningar

  1. Hitið vatn í potti og fáið upp suðu, bætið 2 msk ólífuolíu ásamt 1 tsk salti. Bætið emmer skrúfum saman við og sjóðið í 8 mínútur, sigtið. 
  2. Hitið pönnu og skerið kjúklinginn í smáa bita, (má líka nota eldaðan ef þið eigið afgang). 
  3. Bætið ólífuolíu á pönnuna og steikið kjúklinginn í um það bil 6 mínútur en það fer alveg eftir stærð á bitum (passa að elda kjúklinginn í gegn), kryddið með salti og paprikukryddi. Bætið svo pressuðum hvítlauk út á pönnuna. 
  4. Skerið grænmetið smátt og bætið á pönnuna og steikið í nokkar mínútur. 
  5. Bætið sítrónuolíu út á í lokin ásamt salti eftir smekk.