Hafragrautur sem nægir fyrir tvo. Öðruvísi og skemmtileg útgáfa!
Innihald:
100 gr Rude Health Fruity Date hafragrautur
250 ml Rude Health Almond Drink
250 ml vatn
1 gulrót, rifin
1 msk döðlusýróp eða hlynsýróp
¼ tsk kanill
¼ tsk malaður engifer
örlítið rifið múskat (ca 1/8 ¼ úr teskeið)
Aðferð:
Setjið hafrana, Almond drink og vatnið í pott og setjið yfir meðalhita
Hrærið megninu af gulrótinni við ásamt sýrópinu, kanel, múskat og engifer. Eldið í 5-7 mín, og hrærið reglulega eða þar til grauturinn er orðinn þykkur og rjómakendur.
Berið fram og setjið ögn af rifinni gulrót yfir ásamt t.d. nokkrum grófsöxuðum uppáhaldshnetunum ykkar.