Færðu harðsperrur eða vöðvakrampa?
Magnesíum er fjórða mikilvægasta steinefni líkamans og er gríðarlega mikilvægt fyrir heilsu okkar. Það kemur við sögu í yfir 300 mismunandi efnaskiptaferlum í líkamanum og getur magnesíumskortur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér. Þetta steinefni hefur t.a.m. áhrif á:
- Orkumyndun (ATP í frumunum)
- Vöðvastarfsemi
- Taugastarfsemi
- Myndun beina og tanna
- Meltingu
- Blóðflæði
- Kalkupptöku
- Húðheilsu
Líkami okkar þarfnast magnesíum til að ýta undir aukna orku, jafna út blóðflæði, auka kalk upptöku og hjálpa vöðvastarfsemi líkamans. Við nútíma matarframleiðslu og lifnaðarhætti hefur upptaka á magnesíum í gegnum fæðuna minnkað til muna.
Magnesíum olíurnar frá Better you er einstök formúla í úðaformi sem borin er beint á þann stað sem er að angra þig og áhrifin koma nánast samstundis í ljós, hvort sem um stífleika, bólgur, harðsperrur eða önnur vöðvaeymsli er að ræða.
Magnesíum Original er magnesíum klóríð bætt lindarvatni og er það hreinasta magnesíum afurðin af þeim 3 tegundum sem eru í boði frá Better You. Hinar eru Magnesíum Goodnight og Magnesíum Recovery
Merki um magnesíumskort.
- Svefnerfiðleikar
- Sinadráttur
- Vöðvakrampi
- Aukin næmni fyrir stressi
- Síþreyta
- Orkuleysi
- Höfuðverkir
- Fjörfiskur
Ábyrgðaraðili: Artasan ehf.
Úðað á húð 5-10 sprey á dag. Ef kláða verður vart setjið vatn með. Kláði getur verið merki um magnesium skort.