Íslenskir blómadropar 10 ml. #slökun

Íslenskir blómadropar

Vörunúmer : 10079207

Þessi blanda hjálpar okkur að sleppa takinu á fortíðinni og því sem hamlar vexti og þroska okkar. Gömul hugsana- og hegðunarmynstur leysast upp. Blandan gefur djúpa slökun og hjálpar okkur að njóta andartaksins.  Gott að taka inn þegar þú átt erfitt með að slaka á og njóta. Kemur á jafnvægi í harastöðinni.


1.698 kr
Fjöldi

Þú hristir flöskuna, sem þú hefur valið, og lætur 3 dropa falla undir tunguna  4-8 sinnum á dag eða þar til þér líður betur. Þú getur notað 2-3 blómadropaflöskur í einu. (Gættu þess að láta dropa-teljarann ekki komast í snertingu við munninn.) Þessi aðferð hefur áhrif á yfirborðstilfinningar dagsins. Einnig er gott að setja blómadropa út í vatnsglas, te, vatnsbrúsa eða baðvatn, svo eitthvað sé nefnt.

Ekki er nein hætta á að droparnir veki upp áfengisfíkn hjá óvirkum alkahólistum en þó er gott fyrir þá, sem hafa nýlega komið úr áfengismeðferð, að hafa vaðið fyrir neðan sig og taka þá inn  með vatni. Blómadroparnir veita góða hjálp öllum þeim sem eru í einhverskonar meðferð, sama hvaða nafni hún nefnist.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur