Falafel fyrir 4
- 1 bolli (250 ml) kjúklingabaunir (leggja í bleyti kvöldið áður)
- 1 stk. laukur
- 1 tsk túrmerik
- 1 tsk paprika frá Sonnentor
- 1/2 tsk kardimommur
- 1/2 tsk múskat
- 1/2 tsk kanill frá Sonnentor
- 2 hvítlauksrif
- 1/4 bolli steinselja
- 1 tsk Maldon salt
- 1/2 tsk Maldon pipar
- 1 tsk cumin
- 1 tsk kóríander
- 1 tsk matarsódi
- 1/4 bolli vatn
- 1 dl olía
Sítrónu-tahini jógúrtsósa
- 1 dl grísk jógúrt
- 1/2 tsk Maldon salt
- 2 tsk tahini frá Sunita
- 2 tsk sítrónusafi
Aðferð:
- Leggið kjúklingabaunirnar í bleyti yfir nótt í þreföldu magni af vatni. Hitið ofninn í 200°. Skolið baunirnar vel og látið leka af í sigti. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og látið ganga í 1-2 mín, skafið niður hliðarnar.
- Mótið kúlur með ískúluskeið og þjappið vel, raðið á bakka. Hitið 1 dl af oliu á pönnu og steikið buffin í 1/2 - 1 mín á hvorri hlið og setjið í eldfast mót og í inn í ofn í u.þ.b. 10 mín.
- Hrærið saman gríska jógúrtinu með tahini, salti og sítrónusafa. Gott að bera fram með salati.
Njótið!