Uppskrift að gómsætum súkkulaðiís með svartbaunafudge. Þessi er 100% vegan, er laus við: mjólk, glúten og egg! Þessi á örugglega eftir að slá í gegn!
Uppskrift:
-
- 100 gr 70% dökkt lífrænt súkkulaði
- 1 dós kókosmjólk
- 2 tsk vanilla
- 2 dl soðnar svartar baunir (sjóða samkvæmt leiðbeiningum á pakka)
- 1dl grófhakkaðar pistasíur
- ½ dl hlynsíróp (lífrænt frá Bio Zentrale)
- ½ dl kakónibbur
Aðferð:
Hitið kókosmjólkina að suðu og takið pottinn af hellunni, brjótið niður súkkulaðið í kókosmjólkina og bræðið ( í c.a 1-2 min), bætið við vanilludropum, hrærið þessu vel saman í um það bil mínútu, látið kólna eða setjið í kalt vatnsbað, hrærið þar til það verður kalt ef liggur á.
- Skolið og þerrið svörtu baunirnar vel, setjið á pönnu ásamt hlynsírópinu látið „karamelluserast“ á meðalháum hita þar til vökvinn er nánast horfinn, hrærið vel á meðan og passið að þær brenni ekki, kælið
- Setjið baunir, nibbur og pistasíur saman við kókosmjólk/- súkkulaði blönduna og setjið í ísvél. Ef þú átt ekki ísvél, setjið þá í frysti og hrærið reglulega, ef ísinn er borin fram beint úr frysti þarf hann að standa í 10-20 min áður en hann er borin fram.
Áferðin á baununum verður eins og að bíta í födge þegar þær eru frosnar og sírópshúðunin gerir þær mjög ljúffengar.
Uppskrift er sett saman af Kristínu Steinarsdóttur kokki.