Langa með grænkálspestói sem á eftir að slá í gegn hjá börnum jafnt sem fullorðnum. Pestóið bragðast líka dásamlega eitt og sér, á brauð eða kex.
Uppskrift fyrir þrjá.
Aðferð:
Ofninn er stilltur á 180 gráður. Fiskurinn er skorin niður og settur í eldfast mót. 1/3 af pestóinu er sett yfir fiskinn. Valhnetum, fetaosti og sveppunum stráð yfir. Bakað í ofni í sirka 20 mínútur.
Tilvalið að bera fram með fersku salati, grænkálspestói og Profusion pastanu.