Þú færð allt hráefni til sultugerðarinnar hjá okkur. Lífrænn sultuhleypir fæst verslunum og netverslun Heilsuhúsinu.
Hráefni:
- 1 kg bláber úr íslenskri náttúru
- 400-700 gr hrásykur ( minni sæta - hollari kostur)
- 1 poki lífrænn sultuhleypir
Einn skammtur er fyrir 1 kg af ávöxtum/grænmeti
Eldið aðeins í 10 mínútur
Dragið úr sykurmagni því hleypirinn inniheldur hrásykur
Aðferð:
- Ávextir 1 kg. Blandið með 400 – 700 g af hrásykri, í samræmi við sýrustig ávaxtanna og eftir smekk!
- Láta ávexti liggja í bleyti þar til sykur er uppleystur.
- Blandan er soðin í 5 mínútur og hrærið á sama tíma.
- Bætið poka af hleypi við og sjóðið í 5 – 10 mínútur til viðbótar á meðan hrært er.
- Til að prófa sultuna, er gott að hella nokkrum dropum á disk og kæla til að sjá þykktina. Ef réttri þykkt er ekki náð má bæta eldunar tíma við.
- Setja sjóðandi sultuna í hreinar krukkur, loka þeim. Ekki gleyma að merkja þær!