4 skammtar. Tekur 15 mínútur
Innihald
- 200 gr heilt hirsi
- 20 þurrkaðar apríkósur, skornar í strimla
- 800 ml möndlumjólk
- 2 vanillustangir, skafið innan úr
- Innihaldið úr 4 YOGI detox tepokum
- Börkur af 1 appelsínu
Aðferð
- Setjið hirsi, apríkósustrimla, möndlumjólk og innan úr vanillustöngum í pott
- Látið suðuna koma upp og látið svo malla á lágum hita í 15 mínútur
- Bætið nú innihaldi tepokanna útí og látið malla í 1 mínútu til viðbótar
- Takið af hitanum og stráið appelsínuberki yfir
- Gott er að bera grautinn fram með möndluflögum og meiri möndlumjólk