4 skammtar. Tekur 10 mínútur (+ að liggja í bleyti yfir nótt)
Innihald
- 130 gr haframjöl
- 200 ml heitt vatn
- 4 pokar af YOGI womens balance tei
- 1 banani
- 160 gr bláber
- 160 gr hindber
- 4 steinlausar döðlur
Aðferð
- Sjóðið vatnið og látið tepokana liggja í því í 7 mínútur
- Maukið saman banana og te með töfrasprota eða í blandara
- Saxið döðlur og blandið saman við banana og teblönduna
- Skiptið höfrum í 4 krukkur*
- Skiptið banana og teblöndunni jafnt á milli í krukkurnar og hrærið saman
- Setjið að lokum berin efst, lokið krukkunum og látið bíða í ísskáp yfir nótt
- Takið út 15 mínútum áður en grauturinn skal borinn fram
- Gott að setja smá ferska myntu útá og jurtamjólk ef þú vil þynna grautinn meira
*Líka hægt að setja allt í eina skál og skammta svo beint úr henni