Græn súpa fyrir ónæmiskerfið

12 Oct 2017

Þessi súpa er eins holl og hún lítur út fyrir að vera.

 
Innihald:
  • 600 ml grænmetissoð
  • 2 msk lífræn Biona kókosolía
  • 1 spergilkálshöfuð
  • 200 gr spínat og/eða grænkál
  • 1 dós Biona smjörbaunir, vatninu hellt af
  • 4 hvítlauksgeirar
  • Handfylli af fersku kóríander
  • 1 tsk cumin duft
  • 1 tsk cayenne pipar
  • Safi úr 2 sítrónum
Ofaná ef vill:
  • 30 gr kínóa frá Sólgæti – eldað skv. Leiðbeiningum á poka
  • Saxað spergilkál
Aðferð:
  1. Skerið spergilkálið í litla bita
  2. Merjið hvítlaukinn og steikið í kókosolíunni ásamt cumin og cayenne pipar
  3. Bætið spergilkálinu útá og steikið þangað til það er meyrt
  4. Bætið spínati/grænkáli við og leyfið því að meyrna og minnka umfang sitt
  5. Setjið baunir, sítrónusafa, kóríander, spergilkál og spínat/grænkál og grænmetissoð í blandara og blandið vel.
  6. Hellið í pott og látið malla í nokkar mínútur
  7. Toppið með kínóa og spergilkáli
2 fyrir 1

Kallo grænmetiskraftur

409 kr