Gómsæt og girnilegt bananbrauð sem er líka hægt að bera fram sem köku.
Brauð
2 litlir bananar
4 kúfaðar msk hunang
1 egg
3 msk kókosolía
1 1/3 bolli hýðishrísgrjónamjöl
1 tsk lyftiduft
1/3 tsk matarsódi
1 tsk vanilluduft
smá salt
1 tsk Bloom Matcha duft
Krem
3 msk kókosrjómi
1/2 tsk Bloom Matcha duft
2 msk hunang eða hlynsýróp
1/2 bolli kasjúhnetur
Aðferð
Hitið ofninn í 180°c og finnið til form undir brauðið.
Setjið banana, hunang og kókosolíu í matvinnsluvél og blandið vel.
Bætið egginu í og hrærið áfram.
Næst fara þurrefnin samanvið og blandið vel saman þar til orðið að mjúku deigi.
Skellið blöndunni í formið og bakið við 180°c í 35-40 mínútur. Stingið í með prjóni til að kanna hvort sé örugglega bakað í gegn.
Kælið brauðið vel
Á meðan brauðið kólnar er upplagt að laga kremið. Blandið í matvinnsluvél kókosrjóma, kasjúhnetum, hunangi og Bloom Matcha, þar til orðið að mjúku kremi.
Þegar brauðið er orðið alveg kalt hellið þá kreminu yfir og skreytið að vild.