Vegan graskerssúpa

25 Oct 2017

Vegan graskerssúpa með ferskum kryddjurtum.

Hráefni

  • 1 grasker butternut miðlungs stórt 
  • 400 ml kókosmjólk frá Rapunzel 
  • 2 msk kókosolía frá Rapunzel 
  • 1 teningur grænmetiskraftur frá Rapunzel 
  • 400 ml vatn 
  • 1/2 rautt chili (takið fræin frá) 
  • 1 msk engifer 
  • 1/4 stilkur blaðlauk 
  • 2 hvítlauksrif 
  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  1. Afhýðið og takið fræ úr graskerinu, skerið í bita. Annað grænmeti hreinsað og skorið í bita. Hitið pott með kókosolíunni og steikið grænmetið. 
  2. Bætið kókosmjólk og vatni ásamt grænmetiskrafti út í og látið malla í 20 mín eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt. 
  3. Maukið að lokum með töfrasprota. Smakkið til með salti og pipar.