- 300 ml. möndlumjólk eða önnur plöntumjólk t.d. Ecomil, Koko eða Milkadamia
- 1/2 stk lífrænt avókadó (60g)
- 100 gr. lífræn pera
- 1/4 tsk. vanilluduft frá Sonnentor
- 1 lúka fersk mynta
- 1/2 tsk. börkur af lífrænu lime
- 2 msk. lime safi
- 1/2-1 lúka spínat
- nóg af klökum
Aðferð:
- Skelltu öllu hráefninu, fyrir utan klaka, saman í blandara og vinnið þar til orðið silkimjúkt.
- Bættu þá klakanum saman við og láttu blandarann blanda aðeins lengur
Höfundur uppskriftar:
Anna Guðný hefur mikla ástríðu fyrir andlegri og líkamlegri heilsu sem helst í hendur við áhuga hennar á matargerð. Hún heldur úti
blogginu Heilsa og vellíðan þar sem hún birtir reglulega girnilegar uppskriftir og margs konar heilsufróðleik.