- 2 dl. vatn
- 1 ½ msk extra virgin ólífuolía eða bragðlaus kókosolía
- 100 gr. fínt (sigtað) spelt
- 2 stór egg (3 lítil)
Aðferð:
- Sjóðið saman í potti vatn og olíu.
- Takið pottinn af hitanum og hrærið speltinu út í (hrærið kröftuglega).
- Setjið pottinn aftur yfir hitann og hrærið deigið saman þar til það hefur fengið mjúka áferð.
- Kælið pottinn með deiginu í (t.d. í vatnsbaði).
- Hrærið eggin saman og bætið þeim smám saman út í kalt deigið og hrærið á meðan með handþeytara.
- Hrærið deigið vel eftir að eggjunum hefur verið bætt útí.
- Hitið ofninn í 200°.
- Setjið bökunarpappír á plötu, búið til ca 9 bollur úr deiginu og bakið í miðjum ofni.
- Opnið ekki ofnhurðina fyrstu 20 mín.
Bakist í 30 mínútur í ofni við 200°gráður.
Fyllið með góðri berjasultu, rjóma og bræðið t.d lífrænt 70% Vivani súkklaði ofan á. Njótið.