- 1 þroskaður banani
- 2 vistvæn egg
- 1/2 teskeið kókossykur
- 1/4 græn epli niðursneidd
- 1-2 matskeiðar möndlusmjör
- 1-2 matskeiðar kókosflögur
- 1 teskeið kanill
- Kókosolía fyrir eldun
Aðferð:
- Skrældu og stappaðu bananann og hrærðu honum saman við eggið og kókossykur í lítilli skál.
- Hitaðu kókosolíu á pönnu á meðalhita. Bættu bananahrærunni á pönnuna og hrærðu í henni með viðarsleif.
- Þegar hræran er fullelduð, fjarlægðu hana þá af pönnunni og settu í skál. Toppaðu bananahræruna með epli, möndlusmjöri, kókosflögum og kanil.
Ef þú ert með sæta tönn þá er tilvalið að bæta agave sýrópi eða hunangi yfir í lokin.