Girnileg og holl súkkulaði- og kjúklingabaunaterta með kókosrjóma.
Innihald:
200 gr 70% VIVANI súkkulaði - brotið í bita
150 gr flórsykur – sigtaður
150 gr smjör eða kókosolía
400 gr dós af Biona kjúklingabaunum – sigtaðar og skolaðar
3 egg – hvítur og rauður aðskildar
Smá kakóduft til að skreyta
Í kókosrjómann:
Biona kókosmjólk í dós – setjið í kæli yfir nótt
Aðferð:
Bræddu súkkulaðið yfir vatnsbaði og leyfðu því svo að kólna í 20 mín
Hitaðu ofninn að 190°C
Smyrðu 23 cm hringlaga form með kókosolíu og klæddu það svo með bökunarpappír
Settu flórsykur, kókosolíu og kjúklingabaunir í matvinnsluvél og blandaðu þangað til silkimjúkt. Þú gætir þurft að skafa niður með hliðunum nokkrum sinnum.
Bættu eggjarauðunum saman við og blandaðu vel
Bættu nú bráðna súkkulaðinu með því að hella því saman við á meðan vélin gengur
Stífþeyttu eggjahvíturnar og blandaðu þeim varlega saman við deigið með sleikju
Helltu deiginu í formið og bakaðu í miðjum ofni í 35 mínútur eða þangað til kakan hefur lyft sér og byrjar að losna frá köntunum.
Taktu kökuna út og leyfðu henni að kólna í forminu – sigtaðu svo smá kakóduft yfir hana
Opnaðu kókosmjólkurdósina og taktu bara þykka hlutann frá
Þeyttu kókosrjómann í hrærivél og berðu fram með kökunni