Einfaldur en öðruvísi chiafræbúðingur með sítrónu og kasjúhnetum.
Uppskrift fyrir 2-4
Innihaldsefni:
225 ml. Ecomil almond milk sugar-free
50 gr. kasjúhnetur
1 teskeið rifinn sítrónubörkur
2 matskeiðar ferskur sítrónusafi
2 matskeiðar agave necar
Örlítið salt
3 matskeiðar chiafræ
1 mangó (fyrir skraut)
Aðferð
Settu öll innihaldsefnin fyrir utan chiafræing og mangóið í blandara Blandaðu á miklum hraða þangað til blandan er komin með mjúka áferð. Bragðaðu og bættu við meiri sítrónusafa ef þörf er á.
Hræðu chifafræunum varlega saman við blönduna.
Helltu blöndunni í glas/skál með loki og láttu standa yfir nótt í ísskáp, eða að minnsta kosti í tvo tíma.
Skerðu mangóið í litla bita og skreyttu búðinginn með því ásamt "dassi" af grófum kókosflögum