Innihald:
- 100 gr ferskur ananas
- 20 gr Pulsin vanillu whey prótein (notið pea prótein, vanilluduft og smá stevíu eða hlynsíróp ef þið viljið hafa hann vegan)
- 150 ml kókosmjólk
- 100 ml ananassafi (eða eplasafi)
- 1/2 stk frosinn banani
- 3-4 stk ísmolar
- handfylli af spínati (má sleppa)
Aðferð:
Skellið öllu í blandara og blandið þar til silkimjúkt.
Njótið!
Uppskriftirnar að Pina Colada þeytingnum, próteinvöfflunum og próteinstykkjunum koma frá peachypalate.com. Þar er að finna fjölda heilsusamlegra og ljúffengra uppskrifta.