Lífrænt sólgætispopp

14 Sep 2015

Þegar þú vilt slá í gegn hjá hollustustrumpunum! 

  • 1 msk Biona kókosolía
  • 1/2 bolli lífrænar poppbaunir frá Sólgæti

Bræðið kókosolíu í potti og setjið poppbaunir út í. Látið poppast.            

  • 1/2 bolli saxaðar pistasíuhnetur frá Sólgæti
  • 1/2 bolli trönuber frá Sólgæti
  • 1 bolli kókosflögur frá Sólgæti
  • 2 msk Biona kókosolía
  • 1 msk Rowse hunang
  • Salt (má sleppa)

Bræðið kókosolíu og hunang saman í potti. Blandið öllu vel saman í skál, njótið.