Innihald:
- 2 þroskaðar lárperur (avocado)
- 3 msk. brætt súkkulaði
- 2 msk. hrátt kakó
- 120 ml. kókosmjólk
- 1 tsk. lífrænt vanilluduft
- 3 msk. Maple sýróp eða gott hunang
- Örlítið salt
Aðferð:
- Tæmið lárperurnar með skeið og maukið í matvinnsluvél eða blandara þar til silkimjúkt og kekklaust.
- Bætið restinni af innihaldsefnunum við og blandið þar til allt er orðið vel mjúkt og áferðin er orðin falleg. Betra er að blanda lengur en styttra.
- Smakkið til og bætið við meiri sætu ef þarf.
- Setjið í þær skálar sem á að framreiða búðinginn í og kælið í amk. 1 klst.
- Toppið með því sem þið viljið.
Hugmyndir að "toppings":
- Saxaðar hnetur
- Ristaðar kókosflögur
- Ristaðar hesilhnetur með hunangi
- Granóla
- Fersk eða frosin hindber
- Rifið súkkulaði
- Kakónibbur
Berið fram með bros á vor og njótið með þeim sem ykkur þykir vænt um !