Engifer-og sítrónu sesamkex

11 Oct 2017

Hollt og gott kex með engifer og sítrónu.

 
4 skammtar. Tekur 20 mínútur
 
Innihald:
  • 30 gr bókhveiti mjöl
  • 30 gr sesamfræ
  • ¼ tsk lyftiduft
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 15 gr tahini án salts
  • 20 ml vatn
  • Innihald 2 poka af YOGI ginger lemon tei
  • Smá svartur pipar
Aðferð:
  1. Hitið ofninn að 180°C
  2. Setjið allt saman í skál og blandið vel saman
  3. Skiptið blöndunni í 4 parta og búið til kúlu úr hverjum parti
  4. Fletið hverja kúlu út  á smjörpappírsklædda bökunarplötu
  5. Smyrjið smá tahini á hverja plötu og stráið smá salti og pipar yfir líka
  6. Bakið í 15 mínútur