Gerir 4 stykki. Bökunartími: 40 mínútur
Innihald:
- 30 gr hafraflögur
- 30 gr graskersfræ
- 30 gr hampfræ
- 20 gr kakósmjör
- 4 msk síróp (döðlu, kókos eða agave)
- Innihald úr 2 YOGI Women´s energy tepokum
- 10 dropar vanillu extrakt
Aðferð:
- Bræðið kakósmjör í potti við vægan hita
- Bætið við sírópi, vanillu extrakt og innihaldi tepokanna og hrærið vel saman
- Bætið við hafraflögum, graskersfræjum og hampfræjum og blandið vel saman
- Setjið í frystinn í 15 mínútur
- Mótið svo 4 orkustykki úr blöndunni og frystið aftur í 15 mínútur
- Pakkið hverju stykki inn í bökunarpappír svo þau festist ekki saman
- Geymið í kæli eða frysti
- Líka hægt að gera kúlur