Þessar eru ofur einfaldar en hrikalega góðar. Svona kúlur eru æðislegar, bara ein til tvær eru nóg til friða sykurpúkann. Samt er enginn viðbættur sykur – en nóg af fitu og prótíni til að halda blóðsykrinum í skefjum. Uppskriftin gerir um 30 stk.
Innihald:
250grdöðlur (lagðar í bleyti ef þær eru harðar)
100grkasjúsmjör (hægt að nota möndlusmjör eða hnetusmjör í staðinn)
75grkókosmjöl
1/2 tskvanilluduft frá Sonnentor
4 tskTerranova Avena Sativa & Tart Cherry duft
smá klípa af salti
Aðferð:
Settu allt í matvinnsluvél og láttu hana vinna þangað til allt hefur blandast vel og klístrað deig myndast.
Láttu harðna í kæli í 30 mín.
Mótaðu kúlur með höndunum.
Geymdu í kæli eða frysti.
Hér er bætt út í deigið Avena Sativa & Tart cherry dufti frá Terranova sem er þekkt fyrir slakandi áhrif. Avena Sativa er unnið úr höfrum og talið hafa róandi áhrif á taugakerfið. Tart Cherry, eða súr kirsuber, inniheldur náttúrulegt melatónín sem getur hjálpað okkur að sofa betur. Kúlurnar eru því frábærar sem kvöldnasl í staðinn fyrir snakkpoka eða súkkulaði. Bara 2 stk. innihalda ráðlagðan skammt af duftinu.
Auðvitað er hægt að sleppa duftinu eða jafnvel skipta því út fyrir Magnesium & Calcium Complex frá Terranova. Þá opnar þú bara hylkin og notar innihaldið. Það væri fullkominn biti eftir æfingar. Svo er hægt að bæta við kakódufti, nibbum eða gojiberjum ef vill.