Kurkuma latte, Turmerik mjólk eða gullna mjólkin er einstaklega bragðgóður drykkur og jafnframt góður fyrir líkama og sál. Hér eru tvær góðar uppskriftir!
Kurkuma latte, uppskrift:
• 1 tsk Kurkuma Latte duft í 200ml mjólk (best í hnetu, fræ eða hrísmjólk) hrærið saman og hitið.
Gott að sæta með hunangi eða sýrópi að smekk.
Ayurveda, Golden milk, uppskrift:
1. Fyrst þarftu að undirbúa túrmerik þykkni.
Setjið 1/4 bolla af túrmerik latte blöndu með 1/2 bolli vatn í pott,
Látið krauma á lágum hita þar til orðið að þykkni.
Þykknið er hægt að geyma í 5-7 daga í kæli.
- Til að gera í minna magn: 1 vel full matskeið (um 8 g) af túrmerik Latte
í 30 ml af vatni og hrærið yfir lágum hita þar til alveg þykkt.
2. Notið svo 1 teskeið af túrmerik þykkni í 200ml mjólk (best í hnetu eða fræmjólk) hrærið saman og hitið yfir miðlungs hita í 4-5 mínútur. Látið suðuna alveg koma upp.
3. Gott er að setja 1 teskeið af Sólgætis kókosolíu.
4. Gott að sæta með Sólgætis kókossykri.
Ath: Kryddið leystist ekki alveg upp, alltaf aðeins kornótt !