TEKUR UM KLUKKUTÍMA AÐ GERA – HENTAR FYRIR FJÓRA
Innihald
- 1 stk blómkálshaus
- 100 ml heitt vatn
- 1 poki Yogi Tea Rooibos
- 75 g Whole Earth Smooth hnetusmjör
- 1 msk sítrónusafi
- 1 msk tamari
- 5 g kókosrjómi frá Biona
- 2 handfylli af grófhökkuðum hnetum
- handfylli af kóríander
Aðferð:
- Leggið blómkálshausinn í ofnfast fat í forhitaðan ofninn. Bakið í 60 mín. á 180°C.
- Útbúið teið með 100 ml heitu vatni og einum poka af Yogi Tea Rooibos. Látið pokann liggja í vatninu í um 7 mín.
- Blandið því næst saman í skál; hnetusmjöri, tei, sítrónusafa, tamari og kókosrjóma.
- Takið blómkálið úr ofninum og skerið hvern stöngul á blómkálshausnum í jafnar sneiðar og raðið á stórt fat eða disk.
- Dreifið því næst sósunni yfir ásamt hnetum og fersku kóriander. Blandið og njótið.