Þessar makkarónukökur eru dásamlegar góðar og fallega grænar.
Makkarónur
1 2/3 bollarkókosflögur
1 mskkókosolía
2 mskhunang
1/2 tskBloom Matcha duft
1/4 bollikasjúhnetur
Vanillukrem
1/2 bollikasjúhnetur
1/6 bollimöndlumjólk (ca.50 ml)
1/2 tskvanillu extrakt
1 mskkókosolía
1 mskhunang
Aðferð:
Makkarónur: Malið kasjúhnetur í matvinnsluvél þangað til þær eru orðnar að mjöli. Blandið restinni af innihaldsefnunum saman við og blandið þangað til allt loðir vel saman. Mótið kúlur úr deiginu með höndunum, setjið á disk eða plötu og kælið í ísskáp í u.þ.b. hálftíma.
Vanillukrem: Setjið öll innihaldsefnin í blandara og blandið þangað til kremið er mjúkt og kekkjalaust. Setjið smá krem á hverja makkarónu og berið fram. Best er að leggja kasjúhneturnar í bleyti í a.m.k. 4 klukkutíma áður, þá blandast þær betur. Afgangs krem má nota í eftirrétti í stað rjóma eða búðings.