Þessa uppskrift er hægt að útbúa daginn áður en það á að bera hana fram.
Innihald:
190 gr Vivani dark milk
100 gr Vivani dark nougat
300 ml rjómi
Aðferð:
Saxaðu dark milk súkkulaðið og bræddu yfir vatnsbaði
Hitaðu 100 ml af rjómanum og bættu honum smátt og smátt við bráðna súkkulaðið. Hrærðu stöðugt í með sleif þangað til blandan er silkimjúk og glansandi.
Þeyttu restina af rjómanum og blandaðu honum svo mjög varlega saman við súkkulaðiblönduna
Skiptið blöndunni í falleg glös eða skálar og látið stífna í ísskáp í nokkrar klukkustundir
Saxaðu dark nougat súkkulaðið og bræddu yfir vatnsbaði. Helltu smá yfir hvern skammt af súkkulaði mús og láttu kólna í ísskáp.