Gullmolinn í Heilsuhúsinu

20 Jan 2015

Blue Algae
Blágrænir þörungar eru hin fullkomna fæða, sannkölluð orkubomba. Þeir hafa gjarnan fengið nafnbótina súperfæða, þar sem þeir innihalda nánast öll þau næringarefni sem mannslíkaminn þarf á að halda til að viðhalda hreysti og vellíðan. 

Blágrænir þörungar innihalda meðal annars amínósýrur, B12 vítamín, beta karótín, blaðgrænu og trefjar. Þá eru þeir mjög ríkir af serotonin, sem er gott fyrir geðið og andlega líðan og melatonin fyrir góðan svefn og slökun. Blue green algae er einnig frábær uppstretta vítamína fyrir íþróttafólk og þá sem hreyfa sig mikið.

Sunny Green þörungarnir
Blágrænu þörungarnir frá Sunny Green vaxa villtir í Klamath vatni, þar sem aðstæður fyrir þörungana eru þær allra bestu og næringargildi þeirra því einstakt. Þeir eru auðmeltanlegir og nýtast líkamanum einstaklega vel.

Blágrænir þörungar:
•    Hafa nýst mörgum við þyngdarstjórnun með góðum árangri.
•    Eru mikið notaðir gegn orkuleysi og þreytu.
•    Geta komið í veg fyrir ótímabæra öldrun og sjúkleika.
•    Eru einstaklega húðverndandi og geta styrkt hár og neglur.