Brokkolíklattar sem bragð er af!

09 Oct 2018

Hvort sem þú ert að skipuleggja kjötlausan mánudag, borðar ekki kjöt eða langar bara að prófa eitthvað nýtt verður þú að prófa þessa! Loksins brokkolí í aðalhlutverki en ekki bara á hliðarlínunni.

Brokkolí, eða spergilkál eins og það heitir jú á íslensku, er eitt það hollasta sem við getum í okkur látið. Við ættum öll að borða meira af því. Klattarnir eru góðir með stóru salati en má í raun bera fram með hverju sem hugurinn girnist.

Innihald:

  • 2 bollar (400gr) brokkolí „grjón“ (brokkolí unnið í matvinnsluvél þar til stærð bitanna er á við hrísgrjón – best að nota pulse nokkrum sinnum þar til áferðin er rétt)
  • 2 stór egg – þeytt létt saman í skál
  • 2 msk (15g) kókoshveiti
  • 1/2 tsk lyftiduft
  • 1/4 bolli (30g) whey protein frá Pulsin (eða 1 msk til viðbótar af kókoshveiti)
  • 1 vorlaukur – saxaður smátt
  • 2 tsk hvítlauksduft (eða 1-2 smátt rifin hvítlauksrif)
  • 1/2 tsk laukduft
  • 1/2 tsk sítrónubörkur (af lífrænni sítrónu)
  • Smá klípa af cayenne pipar
  • 2 msk næringarger (má sleppa en gefur virkilega gott bragð)
  • 1/2 tsk gæða salt
  • 1/2 tsk malaður svartur pipar
  • 2 msk (28g) ghee eða kókosolía til að steikja uppúr

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman í stóra skál og kælið svo í um klukkustund í ísskáp
  2. Takið út og mótið 6 klatta
  3. Bræðið ghee eða kókosolíu á pönnu yfir meðalhita
  4. Hitið ofninn að 180°C
  5. Steikið klattana í 3-4 mínútur á hvorri hlið
  6. Færið klattana yfir í eldfast mót og bakið í ofninum í 2-5 mínútur

Sósan:

  • 2 msk (32g) tahini
  • 2 msk sítrónusafi
  • 1-2 msk vatn til að þynna
  • salt og pipar eftir smekk

Allt þeytt saman með písk og smakkað til með salti og pipar

Gott að skreyta með ferskum kryddjurtum eins og kóríander, steinselju og/eða basil.

Þessi uppskrift er fengin frá peachypalate.com í samstarfi við Pulsin.

Um höfundinn:
I’m Shel but some people call me “Peachy”…I’m the food loving, fitness fanatic, blogger behind Peachy Palate, a website which is now my hub for all the paleo, keto and grain free recipes I create, hoping to inspire people to think outside the box, eating whole foods that truly nourish.