Tortillur með tófu, grænmeti og hnetusmjörsmarineringu

26 Oct 2020

Girnilegar og fljótlegar tortillur með grænmeti, tófu og hnetusmjörsmarineringu.

Fyri 4. Eldunartími: 30 mínútur.

Innihaldsefni:

  • 300g stíft tofu, þurrkað vel á milli eldhúspappírs eða pressað með tófupressu
  • 200g rauðkál rifið
  • 1 paprika
  • 4 vorlaukar
  • safi úr lime
  • 4 tortillur, mjúkar
  • Handfylli af mintulaufum

Fyrir hnetumarineringuna:

  • 3 matskeiðar Whole Earth Crunchy Peanut butter
  • 1 matskeið sojasósa
  • 2 matskeið edik
  • 1 matskeið hlynsíróp
  • Dass af chilliflögum

Aðferð:

  1. Forhitið ofninn og stillið á 200c.
  2. Blandið öllum innihaldsefnunum sem eiga að fara í marineringuna saman og geymið til hliðar.
  3. Skerið tófuið niður í 2 cm lengjur og setjið á disk áður en helmingi marineringunnar er heltt yfir tófúið. Notið spaða til velta tófuinu upp úr marineringunni.
  4. Setjið tófúið á ofnplötu í forhitaða ofninn og bakið í ca 20 mínútur eða þangað til það er orðið krispý á brúnunum.
  5. Á meðan tófúið er að bakast setjið rauðkálið, paprika og vorlauk í skál ásamt lime safanum. Bætið við dassi af salti og blandið saman.
  6. Þremur mínútum áður en tófúið er tilbúið setjið tortillurnar inní ofn til upphitunar.
  7. Setjið teskeið af marineringunni á miðju hverrar tortillu, bætið grænmetinu þar ofaná og tófúið þar á etir. Dreifið nokkrum mintulaufum yfir og berið fram.