Sætakartöflu-og hnetusmjörsgratín

09 Mar 2021

Fyrir 6 manns. Eldunartími: 1,5 klst.

Innihaldsefni:

  • 6 meðalstórar sætar kartöflur (1,5 kg.), hreinsaðar og skrúbbaðar
  • 4 hvítlauksrif, skorin fínt
  • 1 búnt kóríander, stilkar skornir fínt og kóríanderblöð geymd til hliðar
  • 2 rauðir eldpipar (e.chilli), fræin fjarðlægð og fínt skornir
  • 300 gr. creme fraiche/sýrður rjómi
  • 3 matskeiðar Whole Earth Cunchy Peanut Butter
  • Salt og pipar
  • Olía til steikingar

Aðferð:

  1. Forhitið ofn í 200 gráður
  2. Notið mandólín eða mjög beittan hníf til að skera sætu kartöflurnar niður í 1/2 cm. sneiðar.
  3. Blandið sætu kartöflunum saman við kóríander stilkana og rauðu chili-unum og kryddið vel með salti og pipar.
  4. Saxið kóríanderblöðin gróflega og setjið til hliðar
  5. Setjið saman í litla skál kóríander blöðin, créme fraische og hnetusmjör.
  6. Hrærið créme fraische blönduna saman við sætu kartöflurnar þangað til það er vel blandað saman.
  7. Smyrjið sirka 20x30 cm. ofnfast fat með olíu og raðið sætu kartöflunum í röð.
  8. Setjið álfilmu yfir fatið og setjið inní ofn í 30 mínútur.
  9. Fjarlægið álfilmuna af fatinu að þeim tíma loknum og setjið fatið aftur í ofninn í 25 mínútur eða þangað til sætu kartöflurnar eru orðnar mjúkar og byrjaðar að brenna aðeins að utan.
  10. Taktu fatið úr ofninum og láttu kólna í nokkrar mínútur áður en restinni af kóríander blöðunum er dreift yfir.

Það sem þarf að hafa við höndina:

  • Hnífur
  • Stór skál
  • Skurðabretti
  • Lítil skál
  • Trésleif
  • Ofnfast fat
  • Álfilma