Þessi hristingur er svo ljúffengur og rjómakenndur að það er draumi líkast. Hann bragðast líkt og mjólkurhristingur, en líka eins og fínasti desert.
Hristingurinn er stútfullur af vítamínum, trefjum og næringu, en bananarinir, cashew hneturnar og hafrarnir gera hann að þykkum og næringarríkum morgunmat sem heldur þér gangandi fram eftir degi og fullkomnar daginn.
Innihald:
Aðferð:
1. Blandið 1/2 bolla af jarðaberjum og agave eða maple sýrópi og hellið í botninn á glasi eða krukku.
2. Blandið restinni af hráefninu vel saman í blandara og hellið varlega ofan í glasið/krukkuna. Hrærið varlega saman við blönduna í botninum.
3. Dreifið síðan chia fræjum, möndlum flögum ofan á og toppið með rifnu dökku súkkulaði.