Jackfruit mexíkósk vefja fyrir 2-4

13 Oct 2020
​Jackfruit er stærsti ávöxturinn sem vex á trjám. Hann er notaður um heim allan í í staðinn fyrir kjöt í ótrúlegu úrvali af réttum.
 
Kostir jackfruit:
  • Inniheldur hluta af ráðlögðum daglegum skammti af trefjum og B6 vítamín og inniheldur einnig C- vítamín og kalium.
  • Jackfruit er vegan
  • Jackfruit inniheldur ekki natríum, gervilit og glúten
 
Fyrir 2-4 . Eldundartími: 15 mínútur
  • 2 msk olífuolía
  • ½ rauður laukur, skorinn í litla bita
  • 4 hvítlauksgeirar, skorinn í litla bita
  • 1/3 rauður chilli, skorinn í litla bita og það má bæta meira í. Fer eftir því  hversu sterkt þú vilt hafa þetta.
  • 1 dós Biona Jackfruit, safinn tekinn frá og skorinn í litla bita
  • 1 tsk chili duft
  • 1 tsk cumin
  • 1 tsk reykt paprika
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Tómatar
  • Avocado
  • Kóríander
  • Límóna
  • Sýrður rjómi
Aðferð
  1. Taktu safann af Jackfruit og skerðu í litla bita. 
  2. Hitaðu olíuna á pönnu og steiktu rauðlaukinn, hvítlaukinn og chili í um 5-6 mínútur.
  3. Bættu við Jackfruit og öllum kryddunum ásamt salti og pipar og leyfðu að vera á pönnunni í um 3-5 mínútur.
  4. Berðu fram með vefjum eða tacoskeljum ásamt skornum, tómötum, avocado, kóríander, sýrðum rjóma og límónu.
 
Verði þér að góðu
2 fyrir 1

Biona Jackfruit 400 gr.

751 kr